Örn Smári

FISKASTYKKI SKATA

2.590 kr

Gæða viskastykki með fiskamynstri sem kallast því skemmtilega nafni “Fiskastykki” Þorláksmessuskatan er umdeildasta máltíð landsins, ekkert kannski í því. Bara JÁ eða hart NEI. Vestfirðingar eru hrifnari af kæstri skötu en aðrir landsmenn enda er hún vestfirsk að uppruna. Víða í fiskveiðiflotanum er kæst skata á borðum vikulega þó landkrabbar þekki hana nær einungis sem Þorláksmessuhefð.

Efni: 100% Bómull

Stærð: 50 x 70 cm

Hönnuður fiskastykkjanna, :Orn Smári dregur innblástur sinn úr hafinu. Ungur var hann sendur vestur á firði þar sem eðlileg afþreying fyrir unga drengi var að sitja saman á bryggjusporðinum og dorga. Að fara með frændum á smáum bát með utanborðsmótor að vitja grásleppuneta var hin mesta upplifun.

Þér gæti einnig líkað

vinsælar vörur